Sagan Prenta Tölvupóstur


Fönn ehf er stofnuð 29. janúar 1960 og var til húsa fyrstu árin í bakhúsi að Fjólugötu 19b í Reykjavík.  Starfsemin var að uppistöðu skyrtu þjónusta og fjöldi starfsfólks var 2-3. 

Tækjakosturinn í þá daga var 12 kg. þvottavél, ein 7 kg. þeytivinda, sérhannað skyrtusett og ein lítil fjölbílishúsa strauvél. Árið 1967 flutti fyrirtækið að Langholtsvegi 113 og keyptur var nýr tækjakostur sem var mun fullkomnari en sá sem fyrir var.  

Fyrirtækið stækkaði ört á þessum árum og var fjöldi starfsmanna kominn í 25 árið 1982.  Fönn hafði árið 1982 sprengt húsnæðið að Langholtsvegi utan af sér sem varð til þess að árið 1982 flutti Fönn í núverandi húsnæði að Skeifunni 11.  Þá fór starfsemin úr því að vera á þremur hæðum í það að vera á einni hæð.  Fyrst eftir flutninginn var Fönn með um 1.230 fermetra en í dag er starfsemin á 2.000 fermetrum.  Fjöldi starfsmanna er um 40 í dag. 

Framkvæmdastjórar  hafa verið nokkrir í gegnum tíðina en núverandi framkvæmdastjóri er
Ari Guðmundsson.  Fönn ehf. er í dag alhliða þvottahús og efnalaug – fatahreinsun með besta tækjakost sem völ er á. 
 
  • Staðsetning