Þjónustan Prenta Tölvupóstur


Fönn ehf. er alhliða þvottahús og efnalaug (fatahreinsun).  Við þjónustum fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga með allan þvott og hreinsun.  Fönn býður einnig uppá leigu á borðdúkum, handklæðadreglum og gólfmottum.   

Fönn notar við þjónustu sína fullkomnustu tæki sem völ er á á markaði og er í stöðugri þróun varðandi nýjar aðferðir í þvotti og hreinsun.  Hjá fyrirtækinu starfar fólk með mikla þekkingu og reynslu í  meðhöndlun á efnum til að ná hámarksárangri í þvotti og hreinsun.


Þvottur – Hreinsun.


Fönn þvær og hreinsar allan almennan þvott auk hreinsunnar á fínni fötum svo sem jakkaföt, kjólum, drögtum og fleiru. Fönn þvær allar stærðir af teppum, sængum, koddum og stærri hlutum sem erfitt er að þvo í heimahúsum.

Fönn þrífur fínni mottur svo sem persneskar mottur og höfum við náð mjög góðum árangri í hreinsun á þessum mottum. Fönn leigir út gólfmottur sem síðan er skipt út eftir þörfum viðskiptavinarins.  Stærðir á mottum eru eftirfarandi:

Motta A                 85x150
Motta B                 115x200
Motta D                 150x250

Fönn leigir út borðdúka til lengri eða skemmri tíma hvort heldur sem er fyrir brúðkaup, fermingar eða til veitingahúsa til lengri tíma.  Gott er að panta dúka í tíma þannig að búið sé að taka til pöntun þegar viðkomandi mætir á svæðið. Dúkastærð er 1,80 x 1,40.

Fönn sér um að sækja persónulegan fatnað starfsmanna til fyrirtækja og skila aftur eftir hreinsun. Fönn sér um að sækja og senda þvott til fyrirtækja og einstaklinga. 
 
  • Staðsetning